3) Gummasögur framhald og tónverk sem GE hefur flutt vítt og breitt frá 1972-2022
Heimsóknir
233413

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

Kórsinfónískar bókmenntir og óperur

Ný þáttaröð, annar þáttur: Elsku börn mín og aðrir. Nú hefst nýr kafli í þessari endalausu sögu minni. Við gætum kallað þennan þátt eftirlætisverk af þeirri tegund sem nefnist Kórsinfónískar bókmenntir og óperur, sem ég hef stjórnað um víða veröld frá 1972. Það er óhjákvæmilegur hluti af störfum hljómsveitastjórans að stjórna viðamiklum verkum þessarar gerðar. Hljóðritanir mínar á þessu sviði eru allar geymdar í söfnum útvarps- og sjónvarpsstöðva, þar á meðal fjöldi hljóðrita í Efstaleiti þar sem þessar tónleikahljóðritanir hafa legið óhreyfðar, sumar frá 1971. Mér verður hugsað til einsöngvara okkar, sem skipta tugum, er tóku þátt í flutningi þessara verka og svo ekki söguna meir.  Undirritaður hefur stjórnað slíkum verkum í fjórum heimsálfum frá 1972+ og þau veitt þeim sem hér talar ómældan unað. Þær reyna ekki síst á einsöngvara, einleikara hljómsveita, semballeikara, fyrsta selló, hljómsveit, stjórnanda og kór söngvara sem leggja sig alla fram. Þakklátir tónlistarunnendur fylla hljómleikahallir. Undirritaður hefur ekki aðgang að hljóðritasafni RÚV, hefur ekki fjármagn til að leysa þær úr gíslingu, og verður því að notast við hljóðrit annarra á Youtube. Þetta er kolröng forgangsröðun tónlistarefnis á Rás 1 og í sjónvarpi, og er álíka gáfulegt eins og að hvorki útvarpa né fjalla um helstu bókmenntir okkar og láta sem þær séu óritaðar og þar með þagga niður í Agli Helgasyni og setja Kiljuna hans í kjallarann fyrir fullt og fast. Hvað segðu hæstvirt skáld þjóðarinnar þá?