3) Gummasögur framhald og tónverk sem GE hefur flutt vítt og breitt frá 1972-2022
Heimsóknir
233420

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

Sinfóníur, konsertar, kórsinfónískar bókmenntir og óperur

Ný þáttaröð: Elsku börn mín og aðrir. Nú hefst nýr kafli í þessari endalausu sögu minni. Við gætum kallað hann eftirlætisverk sem ég hef stjórnað um víða veröld frá 1972. Hljóðritanir mínar á þessu sviði eru allar geymdar í söfnum útvarps- og sjónvarpsstöðva, þar á meðal tugir hillumetra í Efstaleiti þar sem þessar tónleikahljóðritanir hafa legið óhreyfðar, sumar frá 1972 ásamt þúsundum hljóðrita annarra íslenskra tónlistarmanna.