Beethoven Tónleikar (2KLST): https://www.youtube.com/watch?v=P6EdMgtOqIo
Sjá einnig: https://soundcloud.com/user911478883/tracks (dæmi um hljóðrit GE)
Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.
Listsköpun Árvogsfólksins
Upplýsingar til handa þeim er hlusta á hljóðritasafn dr. Guðmundar Emilssonar Árdal og fjölskyldu hans.
Í Árvogsfjölskyldunni er að finna hljómsveitarstjóra, kórstjóra, óperustjóra, amk þrjá píanóleikara, tvær ljóða- og óperusöngkonur auk ljóðskálda og listmálara svo einhverra sé getið, en þessi hópur hefur búið hér í Árvogshúsinu á þessari öld og hinni tuttugustu.
Aldursforsetinn heitir sr. Emil Björnsson, fyrsti dagskrárstjóri Sjónvarpsins, stjórnandi frétta- og fræðsludeildar og prestur Óháða safnaðarins. Emil er tengdasonur Árvogsfólksins, en það fólk á rætur sínar að rekja til Siglufjarðar, Akureyrar, Eyjafjarðar og víðar, en Emil er ættaður úr Breiðdal í austri.
Páll J. Árdal skáld er langafi Guðmundar Emilssonar Árdal. Dóttir Páls hét Theodóra Pálsdóttir Árdal og bjó á Siglufirði. Hún átti mörg mannvænleg börn, þar á meðal móður Guðmundar, Álfheiði Laufeyju Guðmundsdóttur Árdal, söngkonu. Guðmundur Emilsson tók upp ættarnafnið Árdal til heiðurs móður sinni seint og um síðir, en móðir hans var fyrsti tónlistarkennari hans og eiginlega alla tíð. Hin eilífa fyrirmynd.
Þess má og geta að í Árvogi ólst upp sonur Guðmundar, dr. Jón Emil Guðmundsson (Árdal), stjarneðlisfræðingur og kennari við Háskóla Íslands. Á miðöldum þótti enginn maður með menntuðum mönnum nema að hafa stjörnufræðing sér til halds og trausts. Skyldunámsgrein! Þess var krafist af þeim að kunna tónfræði og stjörnufræði, enda margt líkt með þessum listgreinum fagurkera. Tónlist himintunglanna og tónlist mannskepnunnar færa mannkyninu svo margt og lúta sömu lögmálum! Fróðleik sinn nam Jón Emil í Princeton, en þar bjó og kenndi mentor alheimsins, Albert Einstein, á tuttugustu öld. Jón Emil var einsöngvari í drengjakór Laugarneskirkju samhliða námi í leik á strengjahljóðfæri.
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir (Árdal) dóttir Guðmundar er fastráðin söngkona við óperuhúsið í Basel í Sviss og er í heimsreisu. Hún hefur komið víða við í námi og starfi. Það yrði of langt mál að telja það allt upp hér en Álfheiður Erla heldur viðamikla dagbók á netinu um hvað hún hefur haft fyrir stafni, og þar má finna glæsileg hljóðrit og sjónvarpsupptökur af söng hennar. Álfheiðar Erla er getið á öllum helstu tónlistarmiðlum dagsins. Sonur hennar heitir Unnsteinn Emil (Árdal). Ára hans er björt. Hann ljómar.
Jóhannes Guðmundsson (Árdal) II, píanóleikari og framhaldsskólanemi er alnafni náfrænda Guðmundar, Jonna (Árdal) í Hamborg, sem er lykilpersóna í djassögu Íslands. Jonni fæddist á Siglufirði en ólst upp á Akureyri hjá Laufeyju Árdals, dóttur Páls Árdal og systur Theodóru Árdals. Jonni í Hamborg kemur sannarlega við sögu þessa hljóðritasafns. Ljósmynd af honum var höfð á píanói Árvogs. Hver sá er lék á það hljóðfæri horfist í augu við Jonna. Mynd hans er greipt í huga Guðmundar Emilssonar, enda sonur hans nefndur í höfuðið á Jóhannesi I og þeir alnafnar - líkt og áður segir.
Segja má að þetta safn tónverka og hljóðrita (sjá kafla 24) sé einskonar músíkdagbók Árdals- og Árvogsfólksins. Ættfaðirinn, Páll J. Árdal var kennari og skáld. Enn þann dag í dag kann þjóðin ljóðin hans.
Þess má og geta að tíu ára gamall var Guðmundur Emilsson Árdal sendur í vist og til námsdvalar hjá frænda sínum í Edinborg á Skotlandi, til dr. Páls Árdal heimsspekings, og bjó hjá honum og fjölskyldu hans - til að læra um gildi hugsana.
Guðmundur Emilsson hefur átt tvær ástkonur um ævina og kvænst þeim báðum með hraði. Fyrri eiginkona Guðmundar heitir dr. Valgerður Jónsdóttir músíkþerapisti. Að loknu námi stofnaði hún Tónstofu Valgerðar sem hún hefur starfrækt í hálfa öld. Skjólstæðingar Tónstofunnar eru fötluð börn sem fá nýja vídd í líf sitt fyrir sakir tónlistar og opnast líkt og blóm að vori. Börn Valgerðar og Guðmundur eru Jón Emil og Álfheiður Erla.
Seinni eiginkona Guðmundur heitir dr. Renata Emilsson Peskóva og er kennari á menntavísindasviði Háskóla Íslands. Þau kynntust í Bayreuth í Bæjaralandi er Guðmundur stjórnaði frumflutningi á Gretti, óperu Þorkels Sigurbjörnssonar. Dr. Renata hefur mjög látið til sín taka á sviði máltöku og málþroska aðfluttra barna og fullorðinna, en þau mál er í brennipunkti með þjóðinni. Renata er ríkisborgari tveggja landa, Tékklands og Íslands. Sonur þeirra Guðmundar, Jóhannes er alnafni frænda síns - Jonna Í Hamborg.