2) Greinar um tónlist, viðtöl og sjónvarpsþættir
Heimsóknir
230235

Höfundaréttur © Guðmundur Emilsson. Allur réttur áskilinn samkvæmt Bernarsáttmálanum, með viðaukum.
Menntastofnunum er heimilt að nota þessa síðu sé eigenda höfundarréttar getið.

Námsárin mótandi

II.

gydingar

 „Gyðingar eru mestu óvinir mannkyns.“

Doktor doktor !!

Fyrst um viðbrögð mikilvirts og gáfaðs prests þjóðkirkju við drögum að neðangreindum skrifum. Hann sagði: Minn kæri, ég get ekki sagt neitt við svona ýkjuskrifum sem kemur að gagni - svona fyrirvaralaust og símleiðis - enda er ég að hlusta á stjórnmálaumræður á Alþingi. Presturinn, vinur minn, sagði ekki annað. En hér koma vangaveltur undirritaðs frá mánudegi 26. september sem lesnar voru símleiðis fyrir fjóra presta. Allt var gert til að hvetja menn til umræðna. Yfirleit virkar það ekki á Íslandi. Prestarnir sögðu allir sem einn „no comment“. Það gæta allir sinnar syllu í Þúfubjarginu á Íslandi og dettur ekki í huga að kveðast á við minikölska. Og annað í niðurstöðustíl:  Fulltrúar Almættisins hafa í þúsaldir átt samleið með valdhöfum og verið handbendi þeirra. Aftaka Jóns Arasonar er æpandi dæmi um það - pólítískur glæpur á heimsmælikvarða. Því er prestum nauðsyn á að fylgjast grannt með stundlegu þrasi á Alþingi. 

Löggjafarsamkomunni gæti dottið í hug að stela frá þjóðkirkjunni því sem hún stal frá páfanum og hann stal frá auðtrúa fátæklingum - hinum svokölluðu kirkjujörðum - um land allt. Er ekki upp á teningnum núna að láta þjóðina njóta náttúruauðæfa Íslands en ekki fárra útvalda? Kirkjujarðir, hin feitu brauð, eru náttúruauðæfi þjóðarinnar, fjöll og dalir, laxveiðiár og jarðhiti. Ha?

ÝKJUSÖGUR

Cervantes, Voltaireog Snorri Sturluson - og spámenn og lærissveinar Jesús til að mynda - hófu frægustu ritningar sínar á að fullvissa lesendur um hvað söguhetjur þeirra væru stórættaðar og hámenntaðar  - alveg frá Adam og til konunga í Noregi - allt eftir því sem hentaði hverju sinni. Faðir undirritaðs gerði sér og börnum sínum það til skemmtunar að flytja endalausar niðjatölur Biblíunnar til að skerpa minnið. Ef honum fataðist flugið fengum við krónu í bauk. Svona formála voru ýmist skrifaðir í alvöru - eða í háði. Þá dettur sumum í hug jiddískt máltæki: Þegar mennirnir skipuleggja stundlegan áróður sinn og stefnur og strauma - veltast Guðirnir um af hlátri. 

Dæmi: Cervantes lætur sögupersónu sína halda mikla formála um sitt bláa blóð og menntun í bestu háskólum. Afkvæmi hans, Don Kíóti, er ánægður með sitt - svo ekki sé talað um lærisvein hans Sancho Panza en farskjótur hans var asni. Egla, Grettissaga og forn skrif voru öll og eru ýkjusögur. Halldór Laxness reit ýkjusögur, á bækur og í blöð. Nú vill svo til að þúsundir vísindamanna um víða veröld eru og hafa verið að skrifa lærðar bækur um þessi ýkjurit okkar manna - og gera sér það að góðu - öfugt við presta.

Við eigum tvo bræður á Íslandi á vorri tíð sem tala í gjallarhornið gríðarlega á helgum dögum og boða nýtt fagnaðarerindi (sic). Annar er ávarpaður „tvöfaldur doktor í Marteini Lúther“ (hér eftir Marlútur til að spara internetið - af því hann kunni á lútu). Doktor doktor er augljóslega mun menntaðri en skjaldsveinninn - sem er allur minni að vöxtum í fræðunum, og gæti kallast Panza meðreiðarsveinn og skjaldsveinn. Panza lítur mjög upp til riddara síns og hlustar agndofa á endalausar ræður hans - ýkjsögur - sem í senn eru alvarlegar og fyndnar - líkt og allar góðar bókmenntir.

Á meðal þess sem doktor doktor boðar er að Marlútur hafi verið „spámaður“ og meðreiðarsveinar hans og meyjar „lærisveinar.“ Það munar um minna. Dr. Páll Ísólfsson var ekki doktor - bara heiðursdoktor og þótti góður. En hugtakið doktor doktor virðist eiga upp á pallborðið um þessar mundir - amk í RÚV.

Meðreiðarsveinn doktors doktors ærist alveg í svo virðulegum félagsskap - tvíeflist -líkt og hann gangi á háum hælum.

Fyrir um 20 árum létu sumir í ljós þá skoðun í útvarpsráði að það væri tímabært að efna til útvarpsþátta á helgum dögum um helstu trúarbrögð heims! Tillagan var felld með öllum greiddum atkvæðum hreppstjórasona sem vildu sitja áfram á Alþingi og koma málum kjósenda sinna í höfn. Bannað að móðga þá. Þótti þessi dagskrárhugmynd nánast guðlast en örugglega fyrra. Síðan hafa turnar og torg verið sprengd í loft upp um víða veröld og menn alveg blindir á ástæður þess ófagnaðar. Öll framandi trúarbrögð voru og eru talin grunsamleg ef ekki hættuleg - þótt þau séu í raun meinlaus og hógvær. Fordómar og fáviska hefur ráðið för - og magnast. Fólk veit ekki betur. Rúv hefur brugðist skyldu sinni að upplýsa þjóðina um helstu trúarbrögð heims - alla sína tíð.

Marlútur kunni á lútu og orti sálma - segja Útvarpsbræður. Hallgrímur Pétursson er nefndur helgur maður ef ekki spámaður, St. Pétursson - og kirkja ein á Skólavörðuhæð mikill helgidómur og risastór íkoni reistur í minningu hans. Þá verður sumum spurn. Til hvers og af hverju vorum við að murka lífið úr Jóni Arasyni og afkvæmum hans? Boðaði hann villu eða gera útvarpsbræður það nú?

Heilagur Þorlákur, sem ekki er heilagur lengur í guðfræðideildinni / þjóðkirkjunni, heldur hornreka, safnaði hiklaust - og orti og samdi -  fleiri sálma en Marlútur. Sálmar ML voru 35 að tölu að sögn en Sankti Þorlákur ritað tíðasöng á Íslandi fyrir allar aldir - bókstaflega. En hann var ekki doktor doktor - bara mikilvirkur - og því geta kaþólskir átt hann og Jón Arason.

Útvarpsbræður kvarta undan því að Marlútur sé bendlaður við Germaníu og Kaupmannahöfn. Að það sé bara ekki rétt! 

Sumum er spurn. Hvaðan kom „siðbótin“ til Íslands ef ekki frá Germaníu og Kaupmannahöfn. Ekki frá Tíbet - það eitt er víst!

Nú hafa Útvarpsbræður fengið liðstyrk frá Germaníu, en það er ekki pláss á netinu til að tíunda andleg afrek þeirra gesta.  Þessir spámenn eru báðir doktororar og doktorar í Marlúti og spila kannski á lútu. Útvarpsbræður dá svona nútíma heilagleika og bugta sig og beygja fyrir þeim - í fjölmörgum orðum.

Marlútur ritaði í endalausar ritsmíðar sínar: Gyðingar eru mestu óvinir mannkyns. Sumum hreinlega brá í brún er þeir álpuðust til að lesa þessa setningu í bindi nr. 19 (+/-) af 40 í doðröntum Marlútar - trúðu vart sínum eigin augum. Heilagur Hallgrímur Pétursson sagði aldrei svona ljótt - það best er vitað - og allra síst Jón Arason - er það annars?

***

Svona geta sumir haldið áfram endalaust. En að lokum verður nefnd stund á Skólavörðuhæð í Musteri Sankti Hallgríms Péturssonar - (nefnd í friðþægindaskyni fyrir ofangreint).

Þar birtist Daili Lama og blessaði alla trúarleiðtoga og friðflytjendur á Íslandi. Þeir, allir sem einn, og þá biskup Íslands, ávörpuðu Daili Lama með orðunum: „Yðar heilagleiki“. Það þótti sumum merkasta helgistund Íslands í aldir.

Hinn kaþólski Penderecki (tónskáld frá Pólandi) minnist í Dies Irae fórnarlamba óumburðarlyndis gangvart gyðingum, og samkynhneigðum og öllu öðru drasli sem Adolf vildi losna við. Það tók Penderecki 12 mánuði að velja textabrotin sem mynda þessa ógnvekjandi drápu. Þar á meðal er þessi áhrifamikla en einfalda setning úr pólsku samtímaljóði: „. . . og flétta sem pottormar eltust við í skólanum . . . „

dalai